28.05.2008Innvigtunarmet aðra vikuna í röð
Innvigtun vikuna 18.-24. maí var samtals 2.689.201 lítrar og er met frá upphafi skráningar vikulegrar innvigtunar hjá SAM, en fyrstu tölur eru frá ársbyrjun 2003.
Eldra met var sett í fyrri viku, það er vikunni 11.-17. maí s.l. Miðað við mjólkurinnvigtun síðustu ára má búast við að innvigtun fari minnkandi næstu vikur.
Upplýsingar um vikulega innvigtun á pdf formi má nálgast hér.